10.9.2009 | 15:37
Nautakjöt
Aumingja mennirnir skyldu þeir ekki vera að tala gegn betri vitund? ja hver veit.
Kveðja
Magnús
Alvarlegar ásakanir á hendur kjötiðnaði og verslun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.4.2009 | 14:09
Vonandi sýður bara uppúr hjá þeim!!!!!!!!!
Ja hérna. Sennilega verður Hraðfrystihús Ólafsvíkur lagt niður ef þetta nær fram að ganga, sennilega Enni hf líka og sennilega mun byggð leggjast af á Snæfellsnesi öllu og Borgarfirðinum líka, jafnvel Akranesi, Kjós og Kjalarnesi líka. Nei hættiði nú þessari vitleysu bara, menn sögðu að ef herinn færi legðist sennilega byggð af á Suðurnesjum en herinn fór og allt er í lagi ennþá, þannig mun það nú verða líka ef þessar breytingar ná fram að ganga. Tími sérhagsmuna er liðinn, þeir munu víkja fyrir almannahagsmunum og er það vel, mjög vel.
Kv.
Magnús
Sýður á mönnum vegna 5% landsbyggðarskattsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2009 | 07:24
Gamli Moggi vaknaður upp.
Gamli Mogginn er uppvaknaður, hann er samur við sig, nú skal Sjálfstæðisflokknum bjargað og ekki skeytt um skömm né heiður blaðsins. Blaðamönnum er augljóslega beitt af hörku í áróðrinum, ríkið látið borga áróðurinn með auknu tapi og fækkandi áskrifendum. Herkostnaðurinn sem safnast hefur saman er víst kominn yfir 4000 milljónir það eru rúmar 13,000 kr. pr hvert mannsbarn. Ég ætla að afþakka að greiða minn part í því.
Kv.
Magnús Guðjónsson
„Ótrúlega ómerkilegt“ af Samfylkingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2009 | 15:08
Já loksins loksins.
Já loksins loksins loksins loksins.
Vildi bara óska að þetta væri satt.
Kv.
Magnús
Óhjákvæmilegt að kjósa í vor | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2009 | 19:00
Eru stjórnendur sjóðanna ekki búnir að gera nóg af sér?
Góðir Íslendingar!
Var ég ekki að lesa hér að Íslensku Lífeyrissjóðirnir væru búnir að tapa tug milljörðum þrátt fyrir ofurlaun hinna hæfu stjórnenda? mér finnst að svo hafi verið. Nei burtu með þessa ofurstjórnendur á ofurlaununum sem hafa tapað öllum þessum milljörðum og fáum venjulegt fólk á venjulegum launum, hinir hafa skemmt nóg fyrir okkur Íslendingum. Allavega getur staðan varla versnað.
Magnús Guðjónsson
75 milljarða fjárfestingargeta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.1.2009 | 13:13
Ætli Tryggvi viti nokkuð ef hann segir satt ?????????
Einhvernvegin læðist sá grunur nú að mér að þessi ágæti Tryggvi ásamt Elínu og þeirra slekti öllu saman hafi nú bærilega vitað hvað þau hafi verið að gera með samræmdu átaki komið eignum til góðvinanna og síðan að verki loknu hvarf Tryggvi á braut vegna mótmæla, ja er það furða. Hann er búinn að gera sig sekan um að ljúga að þjóðinni og svei honum. Burt með Elínu og allt hennar hyski.
Kv.
Magnús
Tilboð Haga gerði ráð fyrir staðgreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2009 | 07:33
ÆÆ aumingja Sæunn
Skilur ekki aumingja fólkið að við þurfum nýtt fólk? Við erum komin með nóg af gamla spillta liðinu sem hefur komið okkur þangað sem við erum í dag. Best væri að Páll sem er með spillingarstimpil Valgerðar á rassinum hefði vit til að draga sig í hlé. Ef sama gamla liðið verður áfram þó það gangi að einhverju leiti í endurnýjun lífdaga þá mun flokkurinn deyja. Sæunn: fólkið á að fá að ráða hver á að vera í forsvari það er lýðræði, ekki hvað þú hefur unnið lengi fyrir flokkinn, þeir sem ekki skilja þetta eiga ekki að standa í þessu.
Kveðja
Magnús
Fólk mun berjast fyrir sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.12.2008 | 12:37
Hananú!!!!!!!!
það skyldi þó ekki vera að verkinu sé lokið og ekki þörf fyrir slíka þekkingu meir, ja það skyldi þó ekki vera.
Kveðja
Magnús
Innri endurskoðandi óskast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.12.2008 | 15:53
Ha ha ha ha ha ha
Ha ha ha ha ha ha Ha ha ha ha ha ha Ha ha ha ha ha ha Ha ha ha ha ha ha
Kunniði annan betri
Kveðja
Magnús
Blaðamenn DV búa ekki við ritskoðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2008 | 21:12
Ástandið
Jæja þá eru aðgerðirnar kunnar landslýð. Geir og ingibjörg kynntu í dag aðgerðarpakka sem er býsna stór um að mér finnst ekki mikið efni en það á eftir að útfæra þetta nánar. Ég hef alltaf óttast að við yrðum að borga icesave skuldirnar þrátt fyrir gorgeirslegar yfirlýsingar Geirs Haarde. því miður virðist sem frá þeim manni komi sem hægt er að trúa, hvert atvikið á fætur öðru hefur komið upp þar sem svo virðist sem sagt sé hreinlega ósatt í þeim litlu upplýsingum sem koma frá stjórnvöldum. Annars virðist sem helstu upplýsingarnar komi frá útlöndum, semsagt litlar upplýsingar og þær oft rangar. held það sé óhjákvæmilegt að hreinsa til og skipta út í seðlabankanum og víðar og síðan að kjósa í vor.
Bestu kveðjur til allra
Magnús
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Magnús Guðjónsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar